Víðiholt
Frábærlega staðsettar íbúðir og raðhús á besta stað á Álftanesi. Við hönnun á hverfinu var leitast við að draga fram kosti svæðisins og nýta styrkleika umhverfisins.
Raðhús / Parhús
- Glæsilega hönnuð 5 herbergja raðhús / parhús
- 180fm á tveimur hæðum
- Inngarðar sem veita fallega birtu inn í alrými hússins
- Fullfrágengin lóð.
- Afhendast fullkláruð að utan og rúmlega fokheld að innan
- Möguleiki á að fá húsin fullkláruð eða tilbúin til innréttinga
Íbúðir
- Skemmtilega hannaðar og hagkvæmar íbúðir
- Lyftuhús á þremur hæðum
- Fjölskylduvænar 3-4 herbergja íbúðir sem eru á bilinu 94,3 - 111 fm að stærð.
- Sérgeymsla á jarðhæð fylgir hverri íbúð.
- 50 íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum.
Viðtal við arkitekt:
Hönnun
Sveit í borg er réttnefni fyrir Álftanesið. Hönnunin tekur mið af því að gefa bæði íbúum og næstu nágrönnum í hesthúsahverfinu næði.
Tvö fjölbýlishús ásamt raðhúsum staðsett steinsnar frá gylltri fjörunni og sannkölluð paradís fyrir náttúruunnendur. Fjölbýlishúsin eru með sér inngangi og hafa haganlega hannaðar íbúðir.
Í raðhúsunum er sú nýlunda að í miðju hvers húss er garður sem hleypir inn birtu, svæði þar sem hægt er að tengja við náttúruöflin og ná jafnvægi eftir eril dagsins.