Hönnun

Raðhús staðsett steinsnar frá gylltri fjörunni sem er sannkölluð paradís fyrir náttúruunnendur á Álftanesi.

Í raðhúsunum er sú nýlunda að í miðju hvers húss er garður sem hleypir inn birtu, svæði þar sem hægt er að tengja við náttúruöflin og ná jafnvægi eftir eril dagsins.

Um Raðhúsin

  • Við byggingu raðhúsanna er miðað við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald ásamt því að nota krosslímdar timbureiningar til uppbygginga á burðarvirki.
  • Raðhúsin eru einangruð að utan og klædd með veðurþolinni, viðhaldslítilli klæðningu.
  • Húsin eru sambyggð rað- og parhús, 20 íbúðir. Komið er inn um aðalinngang inn í anddyri þar sem er gestasalerni og herbergi ásamt anddyrisskápum, frá anddyri er komið inn í alrými þar sem stigi bindur saman hæðir og eldhús, stofa og borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými. Stórir gluggar veita birtu inni í stofu og borðstofu. Á efri hæð er sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús og herbergi. Síðir og stórir gluggar veita birtu á milli hæða um ljósgarð sem er á milli húsa.

Ljós týpa

Hér er innblástur sóttur í norræna hönnun ásamt því að ljósu litirnir tengjast yfirbragðinu sem er á CLT viðnum.

Tímalaus hönnun sem endurspeglar notagildi og einfaldleika.

Dökk týpa

Dökki liturinn skapar þægilegt og rólegt andrúmsloft og gefur skemmtilega mótstöðu við ljósa litinn á CLT viðnum.

Tímalaus hönnun sem endurspeglar notagildi og einfaldleika.

Efnisval:

Viðtal við arkitekt:

Arnar Þór Jónsson arkitekt segir frá árherslum í hönnun húsanna og svæðisins: